Íslenska       USA

Styrkur og ending

Alda Design einingarnar eru þróuð vara sem hefur staðist margra ára reynslu og öll viðeigandi próf á Bandaríkjamarkaði. Prófanir og mælingar hafa verið gerðar á flísunum t.d. vegna hálku, álags og raka og hafa þær uppfyllt allar tilskildar kröfur. Flest efni sem notuð eru við framleiðsluna eru vistvæn og leggur fyrirtækið áherslu á að geta uppfyllt kröfur sem markaður um vistvænt umhverfi gerir.

Alda Design einingarnar eru bæði endingargóðar og sterkar og þær hafa staðist hefðbundin styrkleikapróf í Bandaríkjunum og á Íslandi.

Prófanir sýna að þær þola 4800 psi.

Það sem forsteyptar einingar hafa fram yfir steinsteypta fleti eða einingar sem steyptir eru á staðnum er eftirfarandi:

  • Meiri styrkur
  • Minni rakadrægni
  • Þynnri einingar
  • Meira litaval
  • Sprungulausir fletir
  • Meiri fráhrinding
  • Fjölbreyttari áferð
Forsíða