Íslenska       USA

Litaval og áferð

Eingöngu er notað náttúrulegt og umhverfisvænt litarefni við framleiðsluna og tryggt er að liturinn dofnar ekki með tímanum. Litirnir hafa mótstöðu gegn kalkútfellingum sem varnar alkalískemmdum.

Hægt er að velja um fjölbreytt litaval og einnig að vinna með hönnuði Alda Design við að ná fram sérstökum litum.

Litaval - Allir litir sýndir hér fyrir neðan eru sérstaklega hannaðir af Alda Design. Hægt er að panta sýnishorn af þeim hjá fyrirtækinu eða söluaðilum.

Grey Slate er dökkgrár litur sem hægt er að ná næstum svörtum með ákveðinni yfirborðsáferð. Þessi litur er einkar vinsæll á austurströnd Bandaríkjanna, sérstaklega í New York.

Higland Green er djúpur og mjög lifandi litur. Þessir tveir fara sérstaklega vel saman ef verið er að leita að fleiri en einum lit.

Terra Cotta og Salmon eru upprunalega litir sem komu frá Mexíkó og Suður-Ameríku og voru yfirleitt framleiddir í formi Saltillo eða leirflísum. Þessir litir eru mjög eftirsóttir á Flórída, í Arizona og Kaliforníu.

Desert Sand er vinsælasti litur Alda Design. Þessi litur er sérstaklega lifandi með litaferli frá brúnu og rauðu eftir því hvernig ljósið fellur á hann. Hann er eins fjölbreyttur og eyðimerkurnar eru margar.

Simply Grey er eins og nafnið gefur til kynna steinsteypugrár. Hann er sérstaklega fallegur og hentar vel fyrir þá sem eru hrifnir af svokölluðum minimalisma, stíl sem nú er allsráðandi í innanhússhönnun. Þetta er litur sem ekki er hægt að fá nóg af. Ljós, lifandi og hreinn.

Alda Design flísar og borðplötueiningar eru unnar og steyptar hver í sínu lagi. Vegna þessa verða engar tvær einingar eða engir tveir fletir nákvæmlega eins. Því meiri sem munurinn er því meira lifandi. Sumir litir eins og Saffron og Desert Sand eru samsettir úr fleiri litum í upprunalegu dufti og jafnast þannig misjafnlega.

Þennan eiginleika köllum við náttúrulegan.
Forsíða