Íslenska       USA

Vöruþróun og rannsóknir



Vöruþróun og rannsóknarvinna Alda Design miðar að því að þróa steinsteyptar innanhússeiningar, s.s. flísar og borðplötur, sem standast kröfur á íslenskum og evrópskum markaði um þykkt og styrkleika. Alda Design hefur um árabil framleitt og markaðssett þessar vörur á Bandaríkjamarkaði.

Fyrirtækið býr yfir þekkingu, reynslu og þróaðri aðferð við gegnheila litun, meðferð íblöndunarefna, mótagerð og vinnsluferli til að ná fram ákveðnum eiginleikum í áferð, útliti, styrkleika og endingu á steinsteyptum einingum.

Lagning og frágangur



Við lagningu og frágang er hægt að skera allar einingarnar eftir þörfum með demantsblaði. Að lokinni lagningu eru samskeyti fyllt með fúgu eða sílikoni í viðeigandi lit. Steinsteyptar flísar eru meðhöndlaðar á sama hátt og aðrar rakadrægar flísar. Vatn er óvinurinn.

Vinsamlegast fáið leiðbeiningar um meðhöndlun eininga, lagningu og yfirborðsmeðhöndlun hjá Alda Design ehf.
Forsíða